Sat 31. Jul 2010 - 00:09
Vel sóttir Sæludagar í Vatnaskógi
Fjölskylduhátíðin Sæludagar eru haldnir í Vatnaskógi við Eyrarvatn í 17. sinn. Klukkan 22.00 í kvöld voru mótsgestir orðnir um 700 og næstum því orðið fullt á öllum tjaldstæðum. Að sögn Ársæls Aðalbergssonar framkvæmdastjóra Vatnaskógar er þó búist við enn fleira fólki á staðinn á morgun. Dagskrá Sæludaga hófst formlega með afar vel sóttri kvöldvöku í kvöld.
Meðal þess sem verður á dagskrá hátíðarinnar í Vatnaskógi um helgina er vatnafjör, fjölskyldubingó, leitin að gáfuðustu fjölskyldunni, knattspyrna, íþróttakeppni og fræðslustundir. Á einni fræðslustundinni mun Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu halda erindi um hugarfar sigurvegarans. Annað kvöld verða svo tónleikar þar sem tónlistarfólkið Pétur Ben og Laylow koma fram ásamt fleirum.
Málaflokkar:
Innlendar fréttir
Fri 30. Jul 2010 - 23:23
2% ökumanna fóru of hratt
Brot 16 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, við Bláfjallaveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 773 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.
Málaflokkar:
Innlendar fréttir
Fri 30. Jul 2010 - 22:48
Umferð gengur mjög vel
Umferð hefur gengið mjög vel um land allt í kvöld samkvæmt upplýsingum frá lögregluembættum víðsvegar um landið. Mikil umferð er í Borgarnes og í gegnum Selfoss. Þá stöðvaði lögreglan á Hvolsvelli fjóra ökumenn í dag fyrir hraðakstur, sem voru að flýta sér í Landeyjarhöfn. Þar hefur lögreglan einnig verið með fíkniefnahund en engin fíkniefni hafa fundist á farþegum. Eitt fíkniefnamál kom upp á Bakkaflugvelli.
Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að allt gangi vel á þjóðhátíð en þar rigndi aðeins í kvöld. Lögreglan í Borgarnesi segir að þar sé búist við 17 þúsund manns á unglingalandsmót UMFÍ um helgina. Hjá Akureyrarlögreglunni hefur allt verið rólegt í kvöld en töluverð umferð hefur verið inn í bæinn. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni hafa engin fréttnæm mál komið á þeirra borð í kvöld.
Málaflokkar:
Innlendar fréttir
Fri 30. Jul 2010 - 22:48
Khedira til Real Madrid
Real Madrid hefur gert fimm ára samning við þýska miðjumanninn Sami Khedira.
Khedira sló í gegn með þýska landsliðinu á heimsmeistarakeppninni í sumar. Hann hefur leikið allan sinn feril með Stuttgart og er talið að spænska liðið hafi greitt um 12 milljón evrur fyrir kappann, eða sem nemur 1,9 milljörðum króna. Khedira lék sinn fyrsta landsleik í september á síðasta ári og var ekki talið líklegt að hann myndi taka mikinn þátt í heimsmeistaramótinu. Meiðsli Michael Ballack gerðu það hins vegar að verkum að Khedira var hent út í djúpu laugina og stóð hann sig með slíkri prýði að Jose Mourinho fékk hann til liðs við Real Madrid.
Málaflokkar:
Íþróttir
Fótbolti
Fri 30. Jul 2010 - 21:37
Halda til Haítí
Erla Svava Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og Jón Magnús Kristinsson bráðalæknir halda til Haítí næstkomandi mánudag, 2. ágúst þar sem þau munu starfa næstu vikur á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins í Carrefour, úthverfi Port-au-Prince. Þau eru 26. og 27. í röðinni af sendifulltrúum Rauða kross Íslands sem haldið hafa til starfa á Haítí síðan jarðskjálftinn mikli reið þar yfir fyrir rúmu hálfu ári.
Fyrir eru sex hjálparstarfsmenn á vegum Rauða kross Íslands á jarðskjálftasvæðinu. Þrír halda til Íslands í lok næstu viku, en Oddfríður Ragnheiður Þórisdóttir og Kristjana Þorláksdóttir hjúkrunarfræðingar halda áfram störfum á finnsk/þýska sjúkrahúsinu út ágúst.Í Port-au-Prince er einnig Kristjón Þorkelsson, margreyndur sendifulltrúi Rauða kross Íslands á sviði vatnsöflunar- og hreinlætismála. Hann hefur starfað fyrir Alþjóða Rauða krossinn á Haítí síðan í febrúar og verður áfram við störf fram á haust.Þetta er fyrsta starfsferð Jóns Magnúsar fyrir Rauða krossinn, en önnur ferð Erlu Svövu til Haítí þar sem hún starfaði við sama sjúkrahús í febrúar. Hún hefur einnig starfað fyrir Alþjóða Rauða krossinn í Pakistan fyrr á þessu ári.Á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins hefur verið veitt ein öflugasta heilbrigðisþjónusta sem er í boði á Haítí síðan skjálftinn reið yfir. Að meðaltali njóta um 1.700 sjúklingar á viku umönnunar þar, auk þess sem þúsundir manna hafa fengið aðstoð hjá færanlegu sjúkrateymi sem gert er út frá sjúkrahúsinu.
Málaflokkar:
Innlendar fréttir
Fri 30. Jul 2010 - 21:26
Guðni Ágústsson og Heiða Kristín Helgadóttir í Kastljósi
Ef borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, væri persóna í Njálu - hver ætli hann væri? Við veltum upp þessari spurningu og fleirum af svipuðum toga með þeim Guðna Ágústssyni og Heiðu Kristínu Helgadóttur, aðstoðarkonu borgarstjórans. Þau Guðni og Heiða spjölluðu líka um fréttir vikunnar, þungar og léttar, verslunarmannahelgina og ýmislegt fleira.
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472246/2010/07/30/0
Sat 31. Jul 2010 - 01:15
Margir í lífshættu á bandarískum íþróttaleikvöngunum
Margir Bandaríkjamenn njóta þess að fá sér pylsu þegar þeir mæta á völlin til að fylgjast með uppáhalds hafnaboltaliðinu sínu. Samkvæmt nýrri rannsókn gætu þeir þó hreinlega verið í lífshættu vegna þessa.
Lesa meira →
Sat 31. Jul 2010 - 00:27
Með lengstu tungu í Bandaríkjunum
Bandaríski leikarinn nick Afanasiev er með lengstu tungu í Bandaríkjunum. Þessa útnefningu veitti sjónvarpsstöðin Fox 5 í San Diego honum. Tungan í Afanasiev er samkvæmt mælingum 8,9 sentimetrar frá lokuðum vörum hans að tungubroddinum.
Lesa meira →
Sat 31. Jul 2010 - 00:01
Mótorhjólamanni veitt eftirför á þyrlu
Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði lögreglu við að veita mótorhjólamanni eftirför. Maðurinn ók á ofsahraða í átt til borgarinnar. Lögreglumaður sem staddur var í þyrlunni gerði lögreglunni í Reykjavík viðvart sem sendi mótorhjól frá lögreglunni til móts við manninn.
Lesa meira →
Sat 31. Jul 2010 - 00:00
Reyndi að stinga lögregluna af en stoppaði svo á rauðu ljósi
Lögreglumenn í Cincinnati náðu ökuþrjót sem þeir eltu þegar hann ákvað að stoppa á rauðu ljósi. Lögreglumennirnir höfðu elt ökumanninn um nokkra stund en hann ók á rúmlega hundrað tuttugu og fimm kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfður hámarkshraði var níutíu kílómetrar á klukkustund.
Lesa meira →
Fri 30. Jul 2010 - 23:51
Snooki handtekin
Vandræðagemlingurinn Nicole "Snooki" Polizzi virðist hafa gengið aðeins of langt. Raunveruleikasjónvarpsstjarnan úr þáttunum Jersey Shore var handtekin af lögreglunni í Seaside Heights á föstudaginn í síðustu viku. Polizzi var handtekinn fyrir að vera undir áhrifum áfengis á almannafæri.
Lesa meira →
Fri 30. Jul 2010 - 23:32
Lang flestir keyra á löglegum hraða
Brot sextán ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Meðalhraði hinna brotlegu var hundrað og einn kílómeter á klukkustund en þar er níutíu kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað og sjö kílómetra hraða.
Lesa meira →