a:7:{s:8:"encoding";s:5:"utf-8";s:5:"title";s:19:"Ríkisútvarpið vefur";s:4:"link";s:17:"http://www.ruv.is";s:8:"language";s:2:"is";s:13:"lastBuildDate";s:24:"Thu 01. Jan 1970 - 01:00";s:5:"items";a:10:{i:0;a:6:{s:5:"title";s:30:"Ítreka andstöðu við sameiningu";s:4:"link";s:54:"http://www.ruv.is/frett/itreka-andstodu-vid-sameiningu";s:11:"description";s:844:" Sjálfstæðismenn hafa ítrekað andstöðu sína við frumvarp ríkisstjórnarinnar um sameiningu ráðuneyta og segja það ótækt til afgreiðslu. Frumvarpið er nú rætt í síðustu umferð á Alþingi. Þeir segja ekkert í frumvarpinu taka á þeim vandamálum sem séu uppi í íslenskri stjórnsýslu og gagnrýna að fagstéttir hafi ekki verið hafðar með í ráðum. Fyrirhugað samráð sem ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu hafi verið svikið og farið í að sameina stærstu ráðuneytin en hin örsmáu starfi áfram óbreytt. Sjálfstæðismenn segja ríkisstjórnina ekki hafa unnið að hagræðingu og bættum vinnubrögðum. Þess í stað séu pólitísk hrossakaup látin ráða ferðinni. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Stjórnmál ";s:8:"category";s:17:"Innlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130124 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 17:40";}i:1;a:6:{s:5:"title";s:20:"Málið miklu flóknara";s:4:"link";s:44:"http://www.ruv.is/frett/malid-miklu-floknara";s:11:"description";s:1710:" Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi segir það grafalvarlegt mál ef ríkisstjórnin ætlar að klúðra enn einu atvinnutækifæri, sem gagnaver í Reykjanesbæ sé, með klaufaskap. Fjármálaráðherra segir málið óendanlega miklu flóknara en látið hefur verið í veðri vaka. Alþingi samþykkti í byrjun júní lög um gagnver í Reykjanesbæ sem enn hefur ekki hafið starfsemi sína. Tölvurisinn IBM tilkynnti nýlega að hann hefði hætt við að taka þátt í gagnaveri Verne Holding vegna laga um virðisaukaskatt hér á landi. Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, spurði fjármálaráðherra á Alþingi í dag um stöðu málsins. Hvar málið stæði í fjármálaráðuneytinu, hvort vilji sé fyrir hendi til að leysa það og þá hvenær.Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði nú þegar mikla vinnu hafa farið í það í ráðuneytinu að koma til móts við óskir viðskiptavina gagnaversins. Þær óskir kalli hins vegar á frávik og ganga þurfi úr skugga um réttmæti þeirra áður en málið verði afgreitt. Það væri til lítils að fara af stað með slíkt verkefni "ef við værum rekin til baka með allt saman ef það stæðist ekki." Hann sagði málið óendanlega miklu flóknara en umræðan hafi gefið til kynna. Það væri ósanngjarnt að halda því fram að íslensk skattayfirvöld, fjármálaráðuneyti og ríkisskattstjóri hefðu ekki af miklum velvilja lagt mikla vinnu í að reyna að leysa þetta mál. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Atvinnulíf Stjórnmál Viðskipti ";s:8:"category";s:17:"Innlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130123 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 17:22";}i:2;a:6:{s:5:"title";s:19:""Er á móti ofbeldi"";s:4:"link";s:41:"http://www.ruv.is/frett/er-a-moti-ofbeldi";s:11:"description";s:706:" Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, segir að blaðamaður hafi slitið orð sín úr samhengi þegar haft var eftir Jóni að hann skoðaði aðallega klám á netinu. Jón segir að blaðamaðurinn hafi aðallega spurt fyrirsjáanlegra spurninga. "Svo spurði hann á hvaða síður hann ég færi aðallega á internetinu. Og ég svaraði aðallega klámsíður og svo sagði ég nei djók, aðallega Facebook og Google. En það kom ekki fram í viðtalinu, þetta var sem sagt tekið úr samhengi." Sagði Jón í viðtali við fréttastofu. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Stjórnmál ";s:8:"category";s:17:"Innlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130122 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:45";}i:3;a:6:{s:5:"title";s:32:"Þriðja endurskoðun AGS fljótlega";s:4:"link";s:57:"http://www.ruv.is/frett/thridja-endurskodun-ags-fljotlega";s:11:"description";s:670:" Caroline Atkinson, formælandi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sagði í dag að stefnt væri að því að stjórn hans afgreiddi þriðju endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands síðar í mánuðinum. Atkinson sagði að sátt hefði náðst um þær aðgerðir sem þyrfti að grípa til í íslenskum efnahagsmálum til að ná markmiðum áætlunarinnar en ganga þyrfti að fullu frá fjármögnun hennar. Að því væri nú unnið og ekki hefði verið dagsett hvenær stjórn sjóðsins tæki endurskoðunina fyrir. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Stjórnmál ";s:8:"category";s:17:"Innlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130121 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:42";}i:4;a:6:{s:5:"title";s:31:"Rúnar Kárason til Bergischer HC";s:4:"link";s:55:"http://www.ruv.is/frett/runar-karason-til-bergischer-hc";s:11:"description";s:1081:" Rúnar Kárason er á leið til 2. deildarliðs Bergischer HC. Rúnar er samningsbundinn Füchse Berlín í 1. deildinni en hefur lítið fengið að spreyta sig eftir að Alexander Pettersson gekk til liðs við félagið.  Rúnar leikur sinn síðasta leik með Berlín í bili á föstudag gegn Rheinland (áður Dormagen) en mun síðan ganga til liðs við Bergischer.  Rúnar fær tvöfaldan leikrétt sem þýðir að hann verður enn leikmaður Berlínar og getur hvenær sem er snúið tilbaka og leikið með Berlín þrátt fyrir að leika aðallega með Bergischer.  Þetta er regla sem leikmenn undir 23 ára aldri geta nýtt sér í Þýskalandi en Rúnar er 22 ára gamall.  Þessi regla er nýtt til að ungir leikmenn geti öðlast meiri leikreynslu en þeir fengju annars hjá stærri liðunum.Í stað Rúnars fékk Mark Bult frá pólska liðinu Vive Kielce en Bult gekk til liðs við pólska liðið í vor frá Berlín. Málaflokkar:  Íþróttir Handbolti ";s:8:"category";s:9:"Handbolti";s:4:"guid";s:27:"130119 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:38";}i:5;a:6:{s:5:"title";s:33:"Aukið fé í atvinnuátak á Akureyri";s:4:"link";s:57:"http://www.ruv.is/frett/aukid-fe-i-atvinnuatak-a-akureyri";s:11:"description";s:682:" Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í dag að veita Akureyrarstofu tíu milljónir króna í aukafjárheimildir vegna atvinnuátaksverkefna. Fjárheimild til verkefnanna var uppurin og taldi bæjarráð mikilvægt að halda áfram þeim verkefnum sem eru í vinnslu. Fjórar milljónir fara í þau verkefni en sex milljónir í ný verkefni. Einnig var rætt um staðsetningu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri en afgreiðslu þess var frestað. Málaflokkar:  Norðurland Atvinnulíf Stjórnmál ";s:8:"category";s:10:"Norðurland";s:4:"guid";s:27:"130118 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:22";}i:6;a:6:{s:5:"title";s:32:"Náðu skipi úr höndum sjóræningja";s:4:"link";s:57:"http://www.ruv.is/frett/nadu-skipi-ur-hondum-sjoraeningja";s:11:"description";s:564:" Bandarískir hermenn náðu í dag skipi úr höndum sjóræningja. Í yfirlýsingu bandaríska flotans segir að níu sjóræningjum hafi tekist að komast um borð í þýskt kaupskip en áhöfnin hafi lokað sig inni í öruggum klefa. Hermenn hafi síðar verið sendir um borð og yfirbugað sjóræningjana. Fyrr í dag tilkynntu stjórnvöld í Búlgaríu að sjóræningjar hefðu sleppt búlgörsku skipi og áhöfn þess. Skipinu var rænt í maí. Málaflokkar:  Erlendar fréttir ";s:8:"category";s:16:"Erlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130117 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:19";}i:7;a:6:{s:5:"title";s:33:"Brottrekstur Roma-fólks fordæmdur";s:4:"link";s:58:"http://www.ruv.is/frett/brottrekstur-roma-folks-fordaemdur";s:11:"description";s:1350:" Evrópuþingið samþykkti í dag ályktun þar sem brottvísanir Róma-fólks, eða sígauna, frá Frakklandi eru fordæmdar og þess krafist að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og aðildarríkja grípi til aðgerða til að Rómafólk geti auðveldar aðlagast samfélaginu. Evrópuþingið samþykkti ályktunina með 337 atkvæðum gegn 245. Í umræðum um hana fóru sumir þingmanna hörðum orðum um aðgerðir Frakka, sem vísað hafa um 1,000 sígaunum úr landi á undanförnum mánuðum, til Búlgaríu og Rúmeníu. Krafist er þess að brottvísunum Róma-fólks verði hætt og lýst yfir áhyggjum af aðgerðum Frakka og annarra aðildarríkja gagnvart sígaunum. Auk Frakka hafa Þjóðverjar og Ítalir einnig vísað sígaunum úr landi á undanförnum árum og fyrr í vikunni voru ólöglegar búðir Róma-fólks jafnaðar við jörðu í nágrenni Rómar og Mílanó. Þá hafa ýmis önnur ríki gripið til ráðstafana sem bitnað hafa á sígaunum á undanförnum misserum. Í ályktun Evrópuþingsins er lögð áhersla á að allir þegnar Evrópusambandsins hafi ferðafrelsi og jafnan rétt til búsetu innan sambandsríkja. Tveir franskir ráðherrar eru nú í Rúmeníu til viðræðna við stjórnvöld þar um stöðu Róma-fólks í landinu. Málaflokkar:  Erlendar fréttir Stjórnmál ";s:8:"category";s:16:"Erlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130116 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:16";}i:8;a:6:{s:5:"title";s:30:"4 frumvörp urðu að lögum í dag";s:4:"link";s:54:"http://www.ruv.is/frett/4-frumvorp-urdu-ad-logum-i-dag";s:11:"description";s:905:" Fjögur frumvörp ríkisstjórnarinnar voru samþykkt sem lög frá Alþingi nú síðdegis. Frumvörp er lúta að hælismálum útlendinga, dvalarleyfi fórnarlamba mansals og þátttöku í samstarfi á ytri landamærum urðu samhljóða að lögum. Þá varð frumvarp um afnám iðnaðarmálagjalds einnig að lögum. Frumvarp um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda sem er lagt fram af formönnum Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknar varð að lögum. Þingmenn Hreyfingarinnar greiddu atkvæði gegn því frumvarpi og segja það vera skýrt dæmi um að Alþingi ætli ekki að taka tillit til vinnu Rannsóknarnefndar Alþingis og þeirra niðurstaðna sem fram komi í skýrslu hennar um bætt siðferði í stjórnmálum. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Stjórnmál ";s:8:"category";s:17:"Innlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130115 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:12";}i:9;a:6:{s:5:"title";s:29:"FIH metinn á 80-120 milljarða";s:4:"link";s:53:"http://www.ruv.is/frett/fih-metinn-a-80-120-milljarda";s:11:"description";s:915:" Danski bankinn FIH er metinn á fjóra til sex milljarða danskra króna, samkvæmt frétt danska viðskiptablaðsins Börsen í dag. FIH er í eigu skilanefndar Kaupþings en veðsettur Seðlabanka Íslands. Kaupþing keypti bankann á rúma sjö milljarða danskra árið 2004. Forstjóri FIH hefur staðfest að bankinn sé í söluferli. Í Börsen er fullyrt í dag að tveir fjárfestahópar keppist nú um að bjóða í bankann sem er sá fimmti stærsti í Danmörku. Annars vegar tveir danskir lífeyrissjóðir og hins vegar breskur fjárfestingarsjóður í samvinnu við fimm danska lífeyrissjóði. Miðað við núverandi gengi er bankinn því metinn á 80 til 120 milljarða íslenskra króna en Kaupþing keypti FIH fyrir sex árum fyrir 145 milljarða. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Viðskipti ";s:8:"category";s:17:"Innlendar fréttir";s:4:"guid";s:27:"130114 at http://www.ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Thu 09. Sep 2010 - 16:04";}}s:11:"items_count";i:10;}