Sat 31. Jul 2010 - 00:38
Ekkert jafnast á við þjóðhátíð
Allt bendir til þess að fjöldamet verði slegið á þjóðhátíð í Eyjum í ár. Búist er við um sextán þúsund manns í Herjólfsdal en það er meira en fyrir ári þegar metið var slegið síðast. Helgin fer vel af stað og segir formaður þjóðhátíðarnefndar að það sé ekki síst góðu veðri að þakka.
Sat 31. Jul 2010 - 00:59
Börn í vélarvana báti
Landhelgisgæslan kom vélarvana bát til hjálpar úti fyrir Laugarnestanga í Reykjavík og dregur bátur gæslunnar hann nú að landi. Ekki var mikil hætta á ferðum og skilyrði góð að sögn vaktmanns í varðstöð Landhelgisgæslunnar en börn voru um borð og því voru hafðar hraðar hendur.
Fri 30. Jul 2010 - 23:46
Æsileg eftirför með þyrlu
Ökumaður mótorhjóls var stöðvaður á Malarhöfða í Reykjavík í kvöld eftir æsilega eftirför lögreglunnar á Selfossi og í Reykjavík, með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hófst eftirförin á Hellisheiði er ökumaðurinn mældist á ofsahraða, hátt í 200 km hraða.
Fri 30. Jul 2010 - 22:47
Vefmyndavél í Herjólfsdal
Hægt er að fylgjast með þjóðhátíðinni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum á mbl.is gegnum vefmyndavél sem sett hefur verið upp á stóra sviðinu og sýnir brekkuna og danspallinn.
Fri 30. Jul 2010 - 23:23
Fáir óku of hratt á Suðurlandi
Brot 16 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag en fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, við Bláfjallaveg.
Fri 30. Jul 2010 - 23:48
Zarudneva fagnaði sigri eftir mikla baráttu
Julia Zarudneva frá Rússlandi fagnaði sigri í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna í kvöld á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Barcelona. Hún hljóp vegalengdina á 9.17,57 mínútum.
Fri 30. Jul 2010 - 23:50
Setti lögreglumenn í stórhættu
Ökumaður bifhjóls var stöðvaður á Malarhöfða í Reykjavík í kvöld eftir að hafa verið veitt eftirför um Suðurlandsveg og Hellisheiðina.
Fri 30. Jul 2010 - 22:52
Big Mac dýrastur á Norðurlöndunum
Það er dýrast að kaupa Big Mac hamborgara á Norðurlöndunum samkvæmt nýrri Big Mac vísitölu. Með vísitölunni er verð á Bic Mac hamborgurum borið saman þvert á landamæri. Samkvæmt henni kostar Bic Mac í Noregi 7,20 bandaríkjadali.
Fri 30. Jul 2010 - 22:00
Segir lækna ekki vera neitt hátekjufólk
Laun lækna sem birtust í tekjublaði Frjálsrar verslunar lýsa engan veginn raunveruleikanum hjá almennum læknum, að mati þeirra sem aðild eiga að Félagi almennra lækna.
Fri 30. Jul 2010 - 20:40
Þúsundir samankomnar á Unglingalandsmóti
„Þetta er alveg glymrandi. Það hefur allt verið á áætlun og allir voða kátir og glaðir, bæði þjálfarar, keppendiur, foreldrar og aðrir gestir," segir Helga Guðrún Guðjónsdóttir. 13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands fer nú fram í Borgarnesi.
Fri 30. Jul 2010 - 23:11
Örfáir stöðvaðir fyrir hraðakstur
Lögreglan fylgdist með umferðarhraða á Suðurlandsvegi við Bláfjallaveg eftir hádegi í dag. Á einni klukkustund óku 773 ökutæki þessa leið í suðurátt. Af þeim óku 16 ökumenn of hratt eða einungis um 2% allra ökumanna sem óku þessa leið.
Fri 30. Jul 2010 - 21:49
Disney seldi Miramax fyrir 79 milljarða
Walt Disney hefur selt Miramax kvikmyndaverið fyrir 660 milljónir dala, eða sem nemur 79 milljörðum íslenskra króna. Salan hefur átt sér töluvert langan aðdraganda enda ljóst að um áhrifamikið fyrirtæki á þessu sviði er að ræða.