29. apríl 2009

Hrollur.com

hrollcom3.gif

Er kominn aftur í allri sinni dýrð og tekur við af þessari síðu.
Öll bloggin hafa verið flutt yfir og ekki lengur hægt að skrá komment hérna.

Sjá nýju síðuna hér: http://www.hrollur.com/

3. apríl 2009

Varta í Nissa

varta.jpgNeinei, Nissi er ekki með HPV vírusinn, heldur splæsti ég á hann nýjum rafgeymi núna um mánaðarmótin. Geymirinn er framleyddur af VARTA ... ég veit ótrúlega fyndið ;) Ég var búinn að vera straumlaus síðan 6. mars og var ekki að höndla það neitt rosalega vel, þvílíkur munur að geta núna farið hvert sem er og hvenar sem er.
Annars er nú lítið að frétta, mig er farið að hlakka svoltið til páskana, það er alltaf fjörugt skrall þá, þetta er yfirleitt einsog versló, bara meiri snjór. Held að kvótinn sé að fara bara 2x út þá, miðað við að það eru 4-5 kvöld í boði, maður þarf að spara sig fyrir suðurferðina sem er helgina eftir páska. Maður verður jafnvel þar í 2 vikur, ef allt gengur eftir. Bróðir minn er að skíra og ferma þessa sömu helgi eftir páska, en sitthvort barnið þó ;)
Ég held ég sé að nálgast heimsmet í sjónvarpsglápi, er allavega orðin íslandsmeistari innanhúss ;) Það er svo mikið af þáttum í gangi að það er alveg full vinna að komast í gegnum þetta allt. Held að Lost sé klárlega sá besti þessa dagana. Sá leiðinlegasti og ég horfi ekki á hann er The Gilmore Girls! Hvað er málið með þær? gg.jpg Ef ég gleymi sjónvarpinu á og er kannski í tölvunni þá fer það yfirleitt ekkert í taugarnar á mér, en ef gilmore girls eru á þá verð ég svo pirraður á suðinu í þeim að ég verð að skipta um stöð. Hefur einhver tekið eftir því hvað þær ná mörgum orðum á mínútu?? Ég er viss um að handritið þeirra er janfnþykkt og símaskráin fyrir einn þátt. Þær tala STANSLAUST! eða tuða! Meiraðsegja voru þær að æfa skylmingar um daginn sem ég sá óvart, og þær töluðu allan tímam meðan þær voru að skylmast. Þær eru 2x á dag á einni sky stöðinni og á rúv líka, og mér finnst bara alltaf þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá séu þær þarna, tuðandi á fullu. Ég bara trúi ekki að einhver geti horft á heilann þátt með þeim án þess að missa vitið. .... hmm þetta hefði kannski frekar átt heima í nöldurhorninu :)

Vatnsberi: Vatnsberinn hefur tamið sér að takast á við vandamál um leið og þau verða. Mundu að ekki er allt gull sem glóir og að sígandi lukka er best.

13. mars 2009

Nöldurhornið

cart.gif
Í framhaldi af hinu geysivinsæla neytendahorni sem var hér á hrollinum um daginn kemur nú nöldurhornið!! Hrollurinn er ferhyrndur einsog svo margt annað og verður spennandi að sjá hvað hin tvö hornin hafa gott að geyma.
Það sem mig langar til að nöldra yfir núna eru Akureyringar :) Já, eflaust mun það ekki slá í gegn hjá öllum. En eftir að hafa búið 6 ár í Reykjavík tók ég sérstaklega eftir því við að flytja hingað hvað umferðar og innkaupa- venjur eru öðruvísi. Það er alveg ótrúlegur munur að fara í bónus hérna miðað við bónus fyrir sunnan. Hér eru allir svo lengi, lesandi á pakkana og dólandi við þetta, passa sig líka sérstaklega á að skilja innkaupakerruna sína eftir þannig hún loki örugglega ganginum og enginn komist framhjá og eru bara einfaldlega allstaðar fyrir manni. Það er varla að maður hætti sér inní kælinn nema vel klæddur, því það gæti tekið nokkra klukkutíma að komast í gegn, maður gæti misst tær og fingur sökum kuls :) Ég var til dæmis á fá mér Hagkaups kjúlla í gær, sem fæst nú ekki lengur í Reykjavík (einn plús þar) og sá sem var á undan mér var svo lengi að velja sér bita að það var farið að slá í þá þegar hann var loksins búinn. Ég nennti ekki að bíða eftir því þannig ég fór og náði mér í annað á meðan, en þegar ég kom aftur þá var annar kominn í kjúllann, sá var enn lengur! Með kerruna sína á ská sem lokaði ganginum að sjálfsögðu. Svo þurfti ég að bíða í svona 5mín á kassanum, því það var einhver gella á undan með vesen útaf einhverri peysu, eitthvað í sambandi verðið og lét sækja fyrir sig annan lit og keypti svo hvoruga, til að trompa allt vippaði hún svo upp starfsmannaskírteinunu sínu og fékk afslátt, jájá! Svo leiðist mér líka hvað maður hittir alltaf einhvern í hverri einustu ferð sem maður kannast við, en á mörkunum með hvort maður eigi að heilsa fólkinu eða ekki, og alltaf einhverjir líka sem maður þekkir alveg. Sakna þess að geta farið ógreiddur og nývaknaður í rifnum jogginggalla í búð og þurfa ekki að þekkja neinn ;)
Svo er umferðin líka eitthvað svo hæg hérna, og ótillitssöm. Það eru allir að troða sér eitthvað og ekkert að spá í að hleypa neinum, voða sparsamir á stefnuljósin finnst mér.

Maður er greinilega orðinn algjör borgar-rotta á þessum stutta tíma fyrir sunnan ;) vona að ég venjist þessu hérna áður en ég missi vitið og verð leiddur út úr bónus í spennitreyju ;)

Nissafréttir:
Nissi hefur það gott hérna úti á plani, sáttur með sinn fulla bensíntank og í skýjunum yfir því að vera straumlaus og þurfa ekki að keyra neitt :S .. en rafgeymirinn var bara tómur á föstudaginn fyrir viku þegar ég ætlaði að nota bílinn og ónýtur í þokkabót. rafgeymir.gif Ég fór með hann í hleðslu, og eftir 3 daga hafði ekkert komið inná hann, og sýrumæling sýndi að hann væri ónýtur. Ég keypti þennan geymi notaðann hjá vöku í október, eftir að mínum hafði verið stolið. En hann hefur greinilega ekki verið betri en þetta. Þannig ef það á einhver rafgeymi á lausu þarna úti, þá vantar mig einn, er tilbúinn að borga í blíðu og eitthvað smá í peningum ;)

Vatnsberi: Það mun reynast þér þreytandi að ná ekki utan um alla þá hluti, sem þú vilt koma frá í dag. Á hinn bóginn þarf ekki öllum að líka við ykkur.

apríl 2009

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Facebook


Notendaupplýsingar Almar Örn Arnþórsson

Recent Comments

  • Helga skrifaði um

  • færsluna Varta í Nissa:
    2 vikur í rvk, eithvað beilaðirðu á því, herra beiler, p ...
  • almar skrifaði um

  • færsluna Varta í Nissa:
    Þær eru bara svo merkilega leiðinlegar að þær eiga skili ...
  • Birkir skrifaði um

  • færsluna Varta í Nissa:
    þú ert að blogga um Gilmore Girls.... Verður það eiithva ...
  • thelma skrifaði um

  • færsluna Nöldurhornið:
    vááá hvað ég skil hvað þú meinar með að þurfa alltaf að ...
  • almar skrifaði um

  • færsluna Nöldurhornið:
    hehe, já ég trúi því. Fínt að hafa nissa straumlausann s ...

    Ads